Magga í bragga.
06.07.2007 20:07:17 / maggsa

Back to home....

 

     Jæja, ég mundi lykilorðið á þessa yfirgefnu síðu.

               Hef brallað margt síðan síðast, meðal annars skruppið til Danmerkur og hemsótt Atla bróður, Svönu og Skarphéðinn sem var algjört æði!!:) Svo hefur það verið mestmegnis vinna og letilíf hér í víkinni:þ er byrjuð núna uppá elló, tek þar nokkrar vaktir í júlí en ætla svo að vera í fríi í ágúst og leika mér eitthvað og ferðast um landið!:)

                   Jæja, segi þetta gott í bili, megið endilega kvitta ef álpist hér inn.....

                                            Kv. Magga


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 17:17:55 / maggsa

Er flutt!

Ætla að flytja mig um stað. Kíkið á mls.bloggar.is:)

                           Sjáumst!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:55:59 / maggsa

Loksins loksins:)

Netið er núna loksins komið á:) hehe, hljóma eins og netsjúklingur en ætli ég sé það ekki bara svolítið;)   Eftir maaaargar hringingar í Hive fengum við loksins nýjan Ráder og þá er allt komið í stand:)

  Um helgina kom Lilja Dögg skvísa til okkar og það var æði eins og alltaf:) Fórum til Víkur á föstudeginum sem við höfum ekki gert leeengi lengi því Fannar er alltaf í skóla á lau. morgnum.  Svo á lau.kvöldið var Þorrablótið í Vík:) Það var mjög gaman og dansað mikið, hringdans,línudans, snúsnúdans og bara nefndu það;) Nefndin var góð og vandaði hún líka vel valið fyrir næstu nefnd, það verður toppnefnd og hlakka ég strax til að ári;) reyndar er fyrst blót á Ketilstöðum sem við ætlum að kíkja á:)  jesss, meiri hákarl!! hohoho.

   Svo verð ég nú aðeins að minnast á leikinn sem var í gær:) Alveg ótrúlegt, endalaust gaman að horfa á hann og vona að þeir vinni Túnis svona á morgun líka!:)

         Þar sem ég get ekkert stært mig af myndum eða neinu af þessu blóti eins og Ragna og Helena þá ætla ég að láta þetta duga í bili.:)

                                                             

      


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 09:18:50 / maggsa

Barceló

Jæja, er í skólanum, reyndar í frönskutíma eeeen þar sem við erum í tölvustofu skólans þá get ég ekki annað en bloggað;)

   Það er nú lítið í fréttum, annað en það að við Fannar pöntuðum okkur nokkra daga ferð til Bercelona í lok apríl!!!:) Það verður ljúft að komast aðeins þangað aftur :) Svo er Þorrablót á morgun með öllum sínum "kræsingum" en það verður án efa stuð, foreldrarnir og svona að sprikla á sviðinu hoho,

        Jæja, var rekinn úr tölvunni:frown: Best að farað læra.

                                                Bæbæ kæru lesendur, endilega að kvitta;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 18:42:54 / maggsa

Betra er seint en aldrei

   óska hér með öllum Gleðilegs árs.  Eitthvað hefur verið lítið um internet tengingu hjá okkur hérna í Hfj eftir að við komum að austan. Þeir hjá Hive eru orðnir bestu vinir okkar.  En ég allavega er orðin þvílíkt leið á þessu.

 

     Margt hefur gerst síðan 14.12. Jú, Jólin voru þarna einhvernstaðar í lok desember og áramótin líka. Þau voru bara hin fínustu þrátt fyrir lokun á kaffinu. Partý hjá Rögnu þar sem margir hittust og var spriklað fram á rauða nótt.

Við Fannar fórum á 3 jólahlaðborð í desember, "ekki í kjólinn fyrir jólin átak"  Svo eyddum við Jólunum og áramótunum fyrir austan og komum í bæinn í Vinnu og skóla.

 

        Þvílíkt rugl þessi snjór, var rétt svo búin að taka tvöfalda skrúfu með sikksakki 360 gráður afturábak (næstum) áðan þegar við bíllinn vorum á leiðnni í kringluna til að kaupa símasnúru til að reyna að lappa eitthvað uppá þetta Internet:) Fór í símabúðina og þar beið ég í svona 5 mín á meðan starfsfólkið var eitthvað að tjatta um daginn og veginn, ég spurði bara svona hvort að einhver væri ekki á þessum kassa, hraðkassa sem þetta átti að vera, og þau sögðu bara að gaurinn væri í mat!! haha...kassinn lokaður á meðan gaurinn var í mat.  Jæja, þessi saga er kannski ekki jafn góð og ég hélt en well.....

 

        Fór niðrí bæ um daginn með stelpunum, langt síðan ég hef farið í bæinn, var búin að gleyma hvað ísl. eru klikk að nenna að standa svona mikið í biðröðum til að komast inná skemmtistaði.....en mjög skemmtilegt samt sem áður :) Við Helena vorum bara gamlar og fórum "snemma" heim.

 

 



                              Búið í bili.   Bless bless.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 20:35:42 / maggsa

Blehh

Er eitthvað svo hriiikalega kærulaus, er að fara í síðasta prófið á morgun og er svo til ekki neitt búin að líta yfir námsefnið! Vildi að ég vissi allt um hugræna sálfræði, Albert Bandura og Edward Tolman og bara allt í þessari í yndislegu sálfræði ;) Náði annars í dag að detta, var á mínum "gullskóm" og að labba heim úr efnafræðiprófi (jii, tala ekki um annað en próf) og passaði mig vel að detta ekki, kannski OF vel því ég datt alveg kylliflöt beint á vinstri hliðina og var ábyggilega fljótari að standa upp heldur en það tók mig að detta:) hhehe, því ekki má neinn sjá ef maður dettur nú, þá er kúlið tótallí farið!...8) Það reyndar voru einhverjir svalir krakkar að reykja þarna nálægt, kannski að þau hafi séð mig. Svo um helgina er stefnan tekin á jólagjafainnkaup, jólaball og jólahlaðborð, nóg að gera.... Ætla nú að reyna að hugsa um að fara eitthvað hugsanlega kannski að líta á sálfræði pálfræði. Margarita biður að heilsa. :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 13:02:37 / maggsa

Klipping

fór í morgun í klippingu, ætlaði að lýsa hárið aðeins....fyrst litahreinsaði (tók dökka litinn úr) hún mig, eftir það varð ég rauðhærð, ekki vildi ég nú vera svoleiðis þó það sé fínn litur sá ég þarna að það fer mér ekki;) Þá var sett í mig skol og viti menn ég varð aaalveg jafn dökk og áður!8| Þetta kostaði mig 14000 krónur og ég fór dökkhærð en alveg svaaaakalega krullhærð út!, svolítið svona eins og rolla sem hefur fengið raflost!!:haha:  

      Efnafræði á morgun og svo sálfræði og mikið hlakka ég til að klára:) Það verður ljúft....

                                                  Bið að heilsa ykkur í bili, kveðja Magga krulla


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 13:37:16 / maggsa

Jólapróf og jólaöl

Jafn mikið og ég þoli ekki að taka próf og stressið sem stundum fylgir þá elska ég líka að vera í hálfgerðu fríi, heima að lesa (mis)skemmtilegar bækur og drekka jólaöl í lítratali á hverjum degi!;) Er búin með tvö próf, íslensku og lífeðlisfræði, vona að það hafi gengið ágætlega, allavega held ég að þaðp hafi gengið.   Núna erum Fannar og ég bara með einn bíl, og þar sem ég er of snobbuð til að taka strætó þá skutla ég honum í vinnuna og skólann svo ég geti farið á bíl í prófin!:)

       Pusjóinn nefnilega yfirgaf mig á þriðjudaginn8|, þá rann víst leigusamningurinn út og skilaði ég honum þá, maðurinn sem tók á móti honum sagðist ætla að yfirfara hann og láta vita ef það væri eitthvað að honum, beyglur eða skrámur eða lent í einhverju öðru tjóni. En þessi maður (stóri, langi eins og honum var líst þegar mér var bent á hann) veit ekki að litli pusjó hefur lent í 2 árekstrum, búið að klessa hann á öllum hliðum nema einni!!:lol:Það sem þessi litli bíll hefur lent í! 

      Lenti í frekar skondnu um daginn, við Fannar fórum útí búð, vorum eittvað að taka úr kælinum í búðinni, þá kom einn gamall maður og spurði hvort við gætum nú ekki rétt honum eins og eina AB-mjólk, jújú, það var nú lítið mál, en þá vildi hann ekki svona litla, Fannar fann þá eina stærri, gamli maðurinn var ekki alveg að gúddera það því hún var með einhverju bragði.....mér fannst þetta frekar mikið fyndið, kallinn sagði okkur þá að fara bara bakvið og gá hvort við ættum þetta ekki þar!!! :haha:  Ég velti fyrir mér hvað það hefði verið sem gerði okkur svona hrikalega búðarstarfsmannaleg??:D  

      Núna er ég búin að tefja það nógu lengi að byrja að læra fyrir Frönskuna!

                                                    Bæjó, Maggs

                                                  


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 16:18:42 / maggsa

Buenas Dias!

Jæja, tími á smá blogg hér:) 

   Greinilegt að jólin eru að koma, það birtir varla á daginn, klukkan er núna 4 og varla hef ég séð sólina í dag, veit ekki hvort það er skýjað en breytir engu, mjög dimmt, það hefur þær aukaverkanir að augnlokin eru ofur þung á morgnanna og vekjaraklukkan öskrar á mig að ég verði bara að sofa aðeins lengur eins og ég geri, tjahh aðeins of oft.:(

   Við Fannar fórum á The Grudge um daginn, veit ekki hvaða stundarbrjálæði greip okkur þarna, ég skammast mín hálfpartinn fyrir að segjast hafa farið á þessa mynd, fór ekki á hana, fór ekki á hana fór ekki á hana,. Alveg hræðilega yfirgengilega óskaplega léleg kvikmynd ef kvikmynd mætti kalla. Ég reyni bara að sannfæra mig um að við höfum ekki borgað 900 kr. fyrir þessi ósköp. Hoho. Þessi kvikmyndagagnrýni var í boði Hagkaupa!

Síðast skóladagurinn er á morgun og þá verða kannski einhver litlu jól, kökur og eitthvað, reyndar er ekki búin að baka neitt (kemur svo sem ekki á óvart) en bið bara Fannar um að baka í kvöld þegar hann kemur heim! :haha:.   Nei, nei, kem bara með eitthvað þjóðlegt hráar rófur, gulrætur og rauðkál. mmmmmm

Náði því að detta á rassin um daginn á leið minni niður skautasvellið sem er á milli skólabygginga niðrí Kvennó, skóbúnaður minn eru annaðhvort opnir gullskór eða há sleip stígvél því einhver óprúttinn náungi útí bæ gengur nú í Puma skónum mínum sem mig vantar svo sárt núna!:cry:  Þjófur, Skilaðu þeim!

           Læt þetta nægja í bili!   Skora á ykkur að kvitta! Veit að þið getið það, líka þeir sem kvitta aldrei. Sama hvort ég þekki ykkur eða ekki! Það er svo gaman að sjá hverjir eru að kíkja á þetta tilgangslausa bull í mér.

                                      Hasta Pronto Calcetines


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 20:40:32 / maggsa

Home sweet home:)

Það var frekar kuldalegt þegar við komum heim á mánudaginn. -1 frost og snjór og mjög jólalegt. Svolítið eins og að koma aftur inní jólatívolíð sem við fórum í Kaupmannahöfn. Við fórum þangað, Atli Svanlaug, Skarphéðinn, Fannar og ég og held ég að við höfum prófað næstum öll tækin, vorum eins og litlir krakkar í nammilandi:) Hjartað tók marga aukakippi, til dæmis þegar við fórum í háa háa fallturninn. Hefði verið gaman að hafa verið með myndavélina þar uppi en hún hefði víst ekki komist heil niður aftur.:o

      Æðislegt að skreppa aðeins frá og fara í eitthvað örðuvísi, tala nú ekki um þegar lokaspretturinn í skólanum er núna alveg í hámarki og kennararnir hafa ekki við að setja fyrir mann próf! Það er nú einu sinni bara LOKApróf eftir rúmlega viku! Hvað er eðlilegra en að hafa svona fyrirlokapróf rétt á undan;) NOT, eins og Borat segir!:)

      Var annars tekinn fyrir þjófnað þarna úti. Atli, Skarphéðinn og ég vorum inní einni íþróttabúð og Atli kastaði í mig einhverju dóti sem ég leit ekkert á og hélt að Skarphéðinn ætti, stakk því beinustu leið oní tösku en komst svo að því þegar við löbbuðum út þá var þetta ekkert nema þýfi og starfsmaðurinn kom undir eins :S Mátti svo sem reyna að stela þessu, man það næst allavegana að taka þjófavörnina af!;) Þetta bjargaðist því ég var nú bara einu sinni stupid foreigner!;) hihi.

Er núna búin að borða hálft kíló af Makkintosi og Celebration, hlustandi á íslensku dívurnar og ef ég væri með meiri sjálfsaga væri ég að læra eeeeeen ég er nú bara að blogga 8). Læt hérna flakka nokkrar spurningar sem þið megið svara eeef þið nennið, ef ekki samt endilega kvitta þá:)

                                    Venlig hilsen. Maggsí:)

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst?

4. Ertu hrifin af mér?

5. Langar þér að kyssa mig,? hmmm

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?

 12. Hversu vel þekkiru mig?

 13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíma langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 19:51:56 / maggsa

Hola Hola!!

      Sá mér ekki annað fært en að blogga núna smá:)  Þar sem það eru nú 2 próf á morgun og ég er að reyna að komast í gírinn, klukkan er 8 og ekki hefur lærdómsandinn komið yfir mig!:(  Er reyndar sú eina í bekknum sem er að fara í þessi próf á morgun því þar sem ég er að halda af landi brott þá varð ég aðeins að hliðra til prófunum:) Sem er bara gott mál þar sem ég verð þá bara búin með þau þegar allir hinir fara í þau.  

Í dag ætlaði ég að gera góðverk, þar sem ég er svo mikið gæðablóð(jeje) ætlaði ég að gefa smá blóð:) Beið í smástund inní blóðbílnum (mmm) þar sem boðið var uppá hinar ýmsu kræsingar:lol: Svo var ég kölluð upp og mér tilkynnt að ég mætti ekki gefa blóð því það vantaði nánast allt járn í mig8| Ohhh, vesen. En járnskorturinn gæti þó verið löggild afsökun fyrir því að sofa yfir sig, því mér skilst að þreyta stafi af járnskorti! aha, er þá búin að komast að svefnsýki minni:)  Sem sagt hafði lítið annað uppúr þessari ferð minni en útýlda vömb af epla og appelsínusafa, snúðum og kleinum. Svo sem ekki slæmt!;)

 Fann þetta myndband hér áðan, verðið að tjékka á því, lofa að þið hlægjið eða a.m.k. brosið. :haha: 

                    http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=1&id=2669

      Jæja, best að fara að læra smá:)   Hafið það gott! 

                                      Magga járnlausa kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 19:19:47 / maggsa

Halló Halló

 Jæja, komin kannski tími á að skrifa smá:) Mörgum þótti þessi New beginning titill hjá mér standast frekar illa. Það hefur lítið gerst hjá mér þessa dagana, skóli og þetta vanalega sem er svo sem fínt.

    Nema hvað að við Fannar pöntuðum okkur flugfar til Danmerkur 16. nóv og ætlum við að heimsækja Atla, Svönu og Skarphéðinn Árna sem er alveg að verða eins árs!! Við ætlum að dvelja þar yfir helgina eða koma aftur á mánudeginum.  Ég hlakka mikið.    Við Hjördís höfum farið núna tvisvar í sund í vikunni sem er svo sem ekki frásögufærandi nema fyrir það að á mánudeginum fórum við uppí Salalaug og vorum ofaní lauginni í rúsínuputtalangantíma, en þegar við fórum uppúr og ætlaði að fara í skóna mína þá gat ég með engu móti fundið þá. Nýju Puma skónum mínum voru stolnir:cry: ég vona að einhver hafi tekið þá í misgripum því ég trúi ekki að fólk geri steli  svona eins og ekkert sé sjálfsagðra:S En það þýðir víst ekki að gráta þetta:)

        jæja, núna held ég að ég sé búin að segja frá því helsta. 

                           Bið að heilsa ykkur. Muna svo að kvitta:)

                                                Síðar, Maggs:***

 P.S. Hvað finnst ykkur um þennan skemmtikraft?? Verðið að horfa á allt myndbandið:)

                            http://b2.is/?sida=tengill&id=195264


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:38:01 / maggsa

New Beginning

Hjördís var eitthvað að skammast út í bloggið mitt, henni fannst tími til kominn að breyta um þetta pásakaþema og setja eitthvað nýtt, og auðvitað hlýddi ég henni, þori ekki örðu;)

       Veturinn skollinn á með öllum sínum fylgifiskum og frosti, vona bara að það komi ekki hálka fyrir 1. des því ég er á rennisléttum spánarsumardekkjum, bílinn "minn" myndi þá þrusast út af veginum og þá frekar líkjast boeing 797 breiðþotu ef ég lenti á einhverjum hálkublettinum.   Annars var það nú ekki meira í bili,

          Minni bara á að kvitta!! Allir! Ég veit að þið kunnið það þið dónalegu gestir sem kvittið ekki!;)  

                                                  Later, Maggs


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 15:02:56 / maggsa

Comeback

Jæja, ég kem ekki inná síðuna mína lengi og svo bara allt orðið breytt......:)

  Gaman að því, lagði leið mína austur þessa helgina, við vorum reyndar ekki komin nema út á bílaplan þegar sumir föttuðu að veskið þeirra var inní húsinu og hvorugt okkar, Fannar eða ég með lykla. Svo við biðum í klst eftir lyklatöframönnunum til að hleypa Fannari inn:)   Almennilegir kallar þetta....

     Svo í morgun eftir morgunmat brunuðum við niðrí fjöru á fjórhjólum og nú here I am, heima bloggandi á tölvuna, ótrúlegt......Hef þetta ekki lengra, ofninn er farinn að pípa...

              Betty Crocker kallar.......Sjáumst síðar!:)

                                               Maggs:***


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 16:52:04 / maggsa

Nóg að snúast

Skólinn byrjaður aftur, stundarskrárafhendingardeginum eyddi ég með gubbupest heima, borðaði grænan Lurk kvöldið áður og er algjörlega sannfærð  um það að hann hafi verið eitraður  því allt sem kom upp úr mér var geimveruofurgrænt!:lol: , jæja,  skal ekkert fara nánar út í þetta.

       svefnsýkin sækir á mig, vorum að horfa á heimildarmynd um sögu Kvennabaráttunnar, mjög áhugavert en áður en ég vissi af vildu augnlokin ekki haldast opin þrátt fyrir tilraunir með tannstöngla og bréfaklemmur þá virkaði ekkert og ég sofnaði,  kennaranum ekki til mikillar gleði!:S  Svo brosti ég bara mygluðu nývöknuðu brosi til hans.    

        Nóg af bulli,  Þangað til þarnæst

                                           

                                           


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9